Færsluflokkur: Bílar og akstur
6.4.2008 | 13:50
Skylningsleisið er algjört
Ég vil lýsa fullkomnum stuðningi og skilningi á aðgerðum atvinnubílstjóra, þessar stéttir eru píndar látlaust með allsskonar reglugerðum og rugli í allar áttir bara af því að svona gera menn út í heimi. Það virðist alltaf vera markmið stjórnvalda hér að gera mönnum og þá sérstaklega einyrkjum lífið óbærilegt með að drekkja þeim í einhverjum fáánlegum reglum.
Þessar hvíldarreglur eru til dæmis alveg út í hött og fyrir gildistöku þeirra átti að sjálfsögðu fyrst að gera aðstöðu fyrir bílana og bílstjórana áður en þessar reglur voru settar á. Það er ekkert grín að keyra þessa stóru bíla eftir þessum rollugötum hér og svo samkvæmt reglunum eiga menn bara að stoppa á miðri götunni þegar tíminn er útrunninn annars fá menn feita sekt en ef menn leggja þessum bílum á veginum þegar tíminn er búinn þá fá þeir líka sekt fyrir að leggja bílnum á götunni.
Menn verða að fara að komast inn í siðmenninguna hér þetta er alveg eins og þegar leysa átti einhverjar ímyndaðar meingunarreglur hér þá voru bara settar reglur um hvarfakúta í alla bíla sem hækkaði verðið heilmikið á bílnum og virka aldrei í kuldanum og kostar bíleigendur stórfé í viðhaldi , þetta lið þarna á alþingi er þjóðinni til skammar.
Haldið áfram látið ekki bugast.
„Við erum bara sektaðir“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hörður Sigurðsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar